Allsherjaratkvæðagreiðsla í VR 2010

Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör vegna framboða til stjórnar og trúnaðarráðs í VR. Atkvæðagreiðslan stendur frá kl. 09:00 mánudaginn 15. mars 2010 til kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 29. mars 2010.

Hverjir hafa atkvæðisrétt?

Atkvæðisrétt hafa allir sem voru fullgildir VR félagar 31. desember 2009. VR félagar sem hafa orðið fullgildir frá þeim tíma eru einnig á kjörskrá. Sama gildir um þá sem greiddu félagsgjald til VR  skv. síðustu skilagrein fyrirtækis, sé skilagrein frá því í september 2009 eða nýrri og viðkomandi hafi greitt lágmarksfélagsgjald fyrir árið 2009. Einnig eru á kjörskrá eldri félagsmenn sem greiddu eitthvað félagsgjald á 67. aldursári og höfðu greitt a.m.k. 50 mánuði af 60 á síðustu fimm árum áður en þeir urðu 67 ára.

Hvernig er kosið?

Allir kosningabærir félagsmenn eiga að hafa fengið sent bréf í pósti með upplýsingum um hvernig atkvæðagreiðslan fer fram en á vef VR má einnig sjá ítarlegar upplýsingar um það. Aðgangur að rafrænum atkvæðaseðli er frá Mínum síðum á vef VR eingöngu, þeir sem ekki hafa aðgang að atkvæðaseðli en telja sig eiga rétt til þátttöku í atkvæðagreiðslunni geta sent erindi þess efnis til kjörstjórnar á netfangið kjorstjorn@vr.is eða í pósti til Kjörstjórn VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík. AthugiðSlíkt erindi verður að hafa borist í síðasta lagi kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 25. mars 2010.

Kosningavefur

Á þessum vef má finna helstu upplýsingar um frambjóðendur og framboð. Frambjóðendur geta að auki birt hér greinar eða vísað í heimasíður / bloggsíður sínar. Allar upplýsingar frá kjörstjórn vegna kosinganna verða einnig birtar á þessum vef sem og á heimasíðu VR, www.vr.is 

Félagsfundur

Þann 17. mars 2010 var haldinn félagsfundur í Turninumí Kópavogi þar sem frambjóðendur og fulltrúar framboða kynntu sig og sínar áherslur. Upptöku af fundinum má sjá á Mínum síðum á vef VR á meðan á kjörfundi stendur, fundargerð fundarins (pdf, 65 kb) er hér birt í heild sinni.